Fréttir

Fréttir og
verkefni

Fylgstu með nýjustu fréttum og verkefnum frá Vögnum & Þjónustu.

Nesfiskur fær afhentan glæsilegan Wingliner-vörukassa með opnanlegum hliðum beggja vegna.

Nesfiskur fær afhentan glæsilegan Wingliner-vörukassa með opnanlegum hliðum beggja vegna.

Nesfiskur hefur fengið afhentan nýjan Wingliner-vörukassa. Kassinn opnast á báðum hliðum og veitir því gott aðgengi við fermingu og losun.

Tjarnarland hrossarækt fær nýja 5 hesta hestakerru frá Vögnum og þjónustu.

Tjarnarland hrossarækt fær nýja 5 hesta hestakerru frá Vögnum og þjónustu.

„Þessi kerra varð fyrir valinu vegna þess að hún er úthugsuð með velferð hestsins og endingu að leiðarljósi“ segja þau Einar og Sigrún. Vagnar og þjónusta óskar Einari og Sigrúnu innilega til hamingju með nýju glæsilegu kerruna.

Glæsileg VÞ 7 hesta hestakerra afhent Hestaflutningum Snorra

Glæsileg VÞ 7 hesta hestakerra afhent Hestaflutningum Snorra

Ný VÞ 7 hesta hestakerra hefur verið afhent Hestaflutningum Snorra. Kerran er búin rúmgóðri aðstöðu fyrir hesta og hönnuð með öryggi, endingu og þægindi að leiðarljósi. Merki fyrirtækisins prýðir nú hlið kerrunnar og gefur henni glæsilegt og persónulegt yfirbragð. Við þökkum fyrir traustið og óskum þeim góðs gengis með nýju kerruna. 🐴🚚

Glæsileg VÞ 6–7 hesta hestakerra afhent Kerhestum

Glæsileg VÞ 6–7 hesta hestakerra afhent Kerhestum

Kerhestar hafa tekið við nýrri VÞ 6–7 hesta hestakerru. Kerran býður upp á gott rými, vandaða smíði og öruggan flutning fyrir hesta. Við þökkum fyrir viðskiptin og traustið sem okkur er sýnt.

Gunnar Jónsson fær afhenta nýja VÞ 5 hesta hestakerru

Gunnar Jónsson fær afhenta nýja VÞ 5 hesta hestakerru

Við hjá Vögnum & Þjónustu óskum Gunnari Jónssyni innilega til hamingju með nýju VÞ 5 hesta hestakerruna sína. Kerra af þessari stærð býður upp á gott rými, öryggi og þægindi fyrir bæði hesta og eigendur. Við þökkum Gunnari fyrir traustið og óskum honum góðs gengis og margra ánægjulegra ferða með nýju kerruna.